Leiðbeiningar um slípun á parketi
Undirbúningur
Fjarlægja þarf öll húsgögn, teppi, blóm og gluggatjöld úr þeim herbergjum þar sem slípa á gólfin. Einnig þarf að koma heimilsdýrum fyrir annarstaðar á meðan. Ef slípa á gömul furugólf þarf að dúkka (reka niður) alla nagla eða draga upp. Rifur sem eru víðari en 2 - 3 mm þarf að fella í lista, minni rifur skal fylla með tréfylli. Gömul samlímd parketgólf þarf oft að yfirfara, t.d. líma niður lausan spón eða gera við á annan hátt. Öllum slíkum viðgerðum þarf að ljúka áður en byrjað er að slípa gólfið.
Slípun
Hvort sem um er að ræða gömul parket- eða furugólf þarf að slípa margar umferðir með mismunandi grófum sandpappír, grófum fyrst og fínum síðast. Fjöldinn ræðst af ástandi gólfsins, fyrri meðhöndlun og því hve gólfið er óslétt. Áður en slípivélin er sett í gang skal gæta þess að slípivalsinn sé uppi. Valsinum er slakað og lyft með litla arminum sem er á handfanginu á vélinni. Gætið þess að vélin sé komin á hreyfingu áður en valsinum er slakað niður og tekin upp áður en komið er að vegg, annars grefur hann sig niður í gólfið. Vélinni er ýtt áfram á jöfnum hraða og dregin til baka í sama farið aftur. Færið vélina síðan til annarar hvorrar handar sem nemur hálfri valsbreiddinni u.þ.b. 10 cm í einu, sjá mynd 1.

Nýtt eða gamalt parket í beinu mynstri.
Ef gólfið er slétt er byrjað með sandpappír númer 60 og slípað langsum eftir viðnum. Oftast nægja tvær umferðir með þessum sandpappírs grófleika til þess að ná af gömlu lakki og mestu óhreinindunum. Næst er slípað með sandpappír nr. 80 eða 100 þar til gólfið er orðið alveg hreint. Því næst er fyllt í allar rifur með tréfylli og hann látin þorna. Næst er slípað með kantvélinni með veggjum, fyrst með sandpappír nr. 60 og síðan 80 eða 100. Því næst er gólfið sópað svo að ekki séu á því sandkorn. Síðast er gólfið slípað með sandpappír nr. 100 á stóru vélinni langsum eftir viðnum þar til öll för eru horfin eftir fyrri umferðirnar. Ef vanda á verkið sérstaklega er gott að slípa eina umferð í viðbót með hæggengri hringslípivél með sandpappírsneti nr. 100 eða 120. Eftir að gólfið hefur verið þrifið er það tilbúið til lökkunar.

Slípun á ósléttu parketi eða furugólfi í beinu mynstri.
Athugið að ekki þarf að slípa 45 gráður nema gólfið sé óslétt. Ef gólfin eru slétt eru allar umferðir slípaðar langsum eftir viðnum.

Slípun á mynstruðum parketgólfum.
Alltaf er slípað 45 gráður á stafina þar til í síðustu umferð. Slípað er þannig í síðustu umferð vegna þess að slípiförin sjást minnst liggi þau langsum á annan stafinn og þversum á hinn og í sömu átt og mesta birtan fellur á gólfið. Athugið að sama gildir um ferningamynstur.


