Gegnheilt parket
Parki býður upp á fjölbreytt úrval af efnum úr gegnheilum við, frá mismunandi framleiðendum víðsvegar að úr heiminum. Gegnheila parketið, sem boðið er til sölu, er 15-20 mm á þykkt og þurrkað sérstaklega fyrir íslenskan markað með 8% +/-2% rakainnihald.
Gegnheilt parket er mjög endingargott gólfefni með mun meira slitlag en spónlagt parket. Rakastigið í gegnheilu parketi skiptir miklu máli, því hreyfingin á þessari tegund gólfefna getur verið mikil. Gegnheilt parket verður alltaf að líma niður og yfirleitt að slípa og yfirborðsmeðhöndla eftir að það hefur verið lagt.
Það er lítið mál að pússa gegnheilt parket upp aftur og gera það eins og nýtt eftir margra ára notkun. Mælt er með því að það sé gert með 10-15 ára millibili. Hægt er að breyta um lit og áferð í hvert skipti sem efnið er pússað upp.
Hér fyrir neðan eru myndir af gegnheilum gólfum sem hafa verið slípuð og yfirborðsmeðhöndluð. Einnig er hægt að sjá fleiri myndir í myndabanka.

Grábæsaður og lakkaður Askur, Líkamsræktarstöðin Átak Akureyri.

Gegnheil amerísk hnota frá Zickgraf slípuð og lökkuð á Sagaclass lounge.

Gegnheil amerísk rauðeik frá Zickgraf slípuð og olíuborin á aðalskrifstofu Alcan í Straumsvík.

Eik Rustic slípuð og lökkuð á Þjóðminjasafni Íslands.

Gegnheil amerísk hnota slípuð og lökkuð.

Eik Rustic slípuð og lökkuð á Þjóðminjasafni Íslands.

Eik Rustic slípuð, svartbæsuð og lökkuð á Þjóðminjasafni Íslands.

Gegnheil amerísk hnota frá Zickgraf slípuð og lökkuð á Sagaclass lounge.

Gegnheil amerísk hnota frá Zickgraf slípuð og lökkuð á Sagaclass lounge.

Eik Rustic slípuð og olíuborin á veislusal í Núpalind.

Ybiraro slípað og lakkað á veislusal í Grafarholti.

Gegnheil amerísk rauðeik frá Zickgraf slípuð og olíuborin á aðalskrifstofu Alcan í Straumsvík.

Gegnheil amerísk rauðeik frá Zickgraf slípuð og olíuborin á aðalskrifstofu Alcan í Straumsvík.

Sérvalinn birkipanill á þjónustuskála Alþingis.

Sérvalinn birkipanill á veggjum og sérvalið birkiparket á gólfi þjónustuskála Alþingis.

Sérvalið birkiparket á gólfi þjónustuskála Alþingis.

Birkiplankar frá Querc-us.

Gegnheil eik í verslun Timberland
Skoða myndabanka


