Vatnslökk
Parki býður upp á vatnslökk frá Berger Seidle sem er leiðandi framleiðandi á evrópska markaðnum í lökkum til yfirborðsmeðhöndlunar parketgólfa.
Miklar tilraunir og rannsóknir hafa verið gerðar af hálfu gólflakkiðnaðarins í heiminum til þess að gera vatnslökk sambærilega slitsterk og þynnislökk. Nú er svo komið að bestu gerðir vatnslakka hafa sambærilegt eða betra slit og rispuþol en flestar gerðir þynnislakka. Það sem skilur að útlit vatnslakka og þynnislakka er að vatnslökkin er hægt að hafa mun mattari en þynnislökk án þess að hætta sé á mismöttun, viðurinn verður eðlilegri og ekki eins "plastlegur". Annað sem er ólíkt í útliti vatns og þynnislakka er að viðurinn "vætist" ekki eins við vatnslökk og þynnislökk, þetta er þó mjög misjafnt eftir viðartegundum en höfuðreglan er að flestar algengustu viðategundirnar verða grárri með vatnslakki en þynnislakki. Nú hefur Berger-Seidle leyst þetta vandamál með AquaOilKombiSystem. Þar sameina þeir kosti olíu og lakks með algerlega umhverfisvænum hætti. Viðurinn heldur hinu vætandi útliti án þess að nota þurfi þynnislökk.
Aqua oil Kombi System er það nýjasta í vatnslökkum.
Sérstakur olíugrunnur er borin á með spaða, látinn þorna yfir nótt og síðan lakkað tvær umferðir með tveggja þátta poly-úreþan vatnslakki. Sameinar kosti olíu og lakks og dregur fram viðarlitinn. Hvort tveggja umhverfisvænt og án leysiefna.

Aqua - Seal 2 kpu
Tveggja þátta poly-úreþan lakk. Eitt af þeim allra sterkustu. Súpermatt og silkimatt. Mjög auðvelt að rúlla.

Aqua - Seal Ecogold
Einþátta akrýl lakk, ódýrt og mjög auðvelt í notkun. Kjörið á íbúðarhús og fyrir þá sem lakka sjálfir.

Aqua - Seal uniprimer
Vatnsbaseraður grunnur sem hægt er að nota á allar viðartegundir. Þó þarf að viðhafa sérstaka varúð þegar hann er notaður á beyki og hlyn. Gerir parketið eins ljóst og hægt er. Vatnslakk er svo notað yfir.



