Þynnislökk
Uno poly-urethan
UNO poly-úreþan lakk má nota hvort heldur sem hefðbundið lakk og lakka í tveim til þremur umferðum, eða grunna tvær umferðir með UNO spaðagrunni eða lakkinu sjálfu og rúlla síðan allt lakkmagnið í einni þykkri umferð.

Exoten grunnur
Alkahól grunnur sem hægt er að nota á allar viðartegundir. Stuttur þurrktími.

Pur þynnir
Þynnir fyrir uno lakk. Einnig notaður sem verkfærahreinsir.

Bókasafn Norræna Hússins í Reykjavík
Á bókasafni sem þessu eru gerðar miklar kröfur til yfirborðsmeðhöndlunar. Hún þarf að hafa hámarks slitþol, vera fljótleg (ekki má loka of lengi) ásamt því að vera áferðarfalleg. Einnig þarf að taka tillit til að mjög sjaldan gefst tími til viðhalds. Þetta 300 fm beykiparket var grunnað tvær umferðir með UNO spaðagrunni og síðan yfirlakkað með einni þykkri umferð af UNO poly-úreþan lakki.
![norr_hus[1]](/media/myndabanki-parki/banners/medium/norr_hus[1].jpg)
UNO stanslaus lökkun
Tvær til þrjár umferðir af UNO spaðagrunni með 15 mínúntna millibili. Engin millislípun. Eftir 20 mínútna bið er lökkuð ein þykk umferð af UNO parketlakki allt að 250 ml á fm með rúllu. Allt að 50 fm gólf er hægt að fulllakka á 2 tímum.
Helstu kostir eru að þetta er mjög fljótleg aðferð. Fyllir öll samskeyti og kemur í veg fyrir að lakkið leki niður í rifur. Dekkir viðinn minna en hefðbundin lökkun.
![uno_lakkt2[1]](/media/myndabanki-parki/banners/uno_lakkt2[1].gif)
UNO spaða lökkun
Tvær umferðir af UNO lakki með spaða með 15 mínúntna millibili. Látið bíða yfir nótt. Engin millislípun. Síðasta umferð með UNO parketlakki allt að 300 ml á fm með rúllu. Helstu kostir aðferðar eru að hún er tiltölulega fljótleg. Fyllir flest öll samskeyti og kemur að mestu í veg fyrir að lakkið leki niður í rifur. Dregur betur fram viðarlitinn en grunnun með spaðagrunni.

UNO hefðbundin lökkun
Þrjár umferðir með UNO parketlakki allt að 120 ml á fm í umferð með rúllu. Millislípun eftir fyrstu umferð. U.þ.b. 8 klst á milli umferða. Heltu kostir aðferðar eru að þetta er hefðbundin lakkaðferð sem er auðveld en frekar seinleg. Dregur vel fram viðarlitinn.

L62 - sýruhert parketlakk
L62 er tveggja þátta sýruhert lakk. Mjög fljótþornandi, litsterkt, fallegt, auðvelt í notkun og ódýrt. Eina lakkið sem öruggt er að nota á gólf sem áður hafa verið vaxborin. Helsti ókostur er mjög sterk lykt.
![syruh_1[1]](/media/myndabanki-parki/banners/syruh_1[1].jpg)
Antik gólf í virðulegu húsi á Melunum í Reykjavík frá u.þ.b. 1945. Gólfið hafði verið vaxborið í upphafi. Lakkað 3 umferðir með DSP.
L62 - hefðbundin lökkun
Þrjár umferðir með L 62 Eurotop parketlakki, allt að 100 ml á fm í umferð með rúllu. Millislípun eftir fyrstu umferð. U.þ.b. 6 klst á milli umferða. Helstu kostir aðferðarinnar eru að þetta er hefðbundin lakkaðferð sem er auðveld en frekar seinleg. Engin vandræði eru þó að gólfið hafi áður verið vaxborið. Dregur vel fram viðarlitinn. Slitsterkt og áferðarfallegt.
![l_62[1]](/media/myndabanki-parki/banners/l_62[1].gif)
MC2 - poly úreþan lakkhúð
MCU er einþátta rakaherðandi poly-úreþan húð. Ótrúlega slitsterk, efnaþolin og sveigjanleg. Notuð á viðar-, kork- og steingólf. Besti kosturinn þar sem fyrst og fremst er óskað eftir miklum slitstyrk.
![felagsh_setltj[1]](/media/myndabanki-parki/banners/felagsh_setltj[1].jpg)
Félagsheimili Seltjarnarnes.
MCU lakkhúð er besti kosturinn á dansgólf og önnur gólf sem þola þurfa hámarks áníðslu. Bæsað með Floorex bæsi og lakkaðar 2 umferðir með MC2 lakkhúð.
MC2 stanslaus lökkun
Tvær umferðir af UNO spaðagrunni með 15 mínútna millibili. Engin millislípun. Eftir 20 mínútna bið er lökkuð ein þykk umferð af MC2 poly-úreþan lakkhúð með allt að 300 ml á fm með rúllu. Allt að 50 fm gólf er hægt að fulllakka á 2 tímum. Helstu kostir þessarar aðferðar eru að þetta er mjög fljótleg og sterk aðferð sem fyllir öll samskeyti og kemur í veg fyrir að lakkið leki niður í rifur. Með þessari aðferð verður viðurinn ekki eins dökkur og með hefðbundinni lökkun.
![mcu2[1]](/media/myndabanki-parki/banners/mcu2[1].gif)
MC2 poly - úreþan lakkhúð
Hefðbundin lökkun. Tvær til þrjár umferðir með MC2 poly - úreþan lakkhúð. Allt að 150 ml á fm í umferð með rúllu. Millislípun eftir 24 klst. U.þ.b. 18 - 24 klst. á milli umferða. Helstu kostir þessarar aðferðar eru að hún gefur sterkustu lakkhúð sem völ er á og dregur vel fram viðarlitinn.
![mcu1[1]](/media/myndabanki-parki/banners/mcu1[1].gif)
Við getum sérpantað lakk eftir þínum óskum.


