Sagan

Fyrirtækið Parki var formlega stofnað árið 1988 af Sigurði Ólafssyni sem fjölskyldufyrirtæki. Það á sér þó nokkra forsögu því faðir stofnandans var einn af fyrstu Íslendingunum til að leggja stund á parketlögn og vann Sigurður hjá föður sínum frá unga aldri. Í upphafi var Parki einungis með lageraðstöðu og seldi vörur beint til verktaka, ásamt parketlögn.

Árið 2003 varð vendipunktur í rekstri fyrirtækisins þegar inn í fyrirtækið komu nýjir aðilar. Sama ár var opnuð verslun að Dalvegi 18 í Kópavogi og við það tækifæri var bætt við vöruframboðið innihurðum, fljótandi parketi og náttúrusteini.

Fljótlega var ráðist í það að opna nýja og stórglæsilega verslun að Dalvegi 10 - 14, en hún var opnuð í mars 2007. Verslunin var stækkuð til muna og jafnframt var vöruframboð stóraukið. Ber þar einkum að nefna eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar, fataskápa, gasarna og stóraukið vöruframboð á flísum.  

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.