Viðhaldsefni fyrir flísar og náttúrustein
Viðhalds- og hreinsiefnin fyrir flísar og náttúrstein, sem Parki býður uppá, koma frá framleiðandanum Moeller Stonecare
Hér fyrir neðan má finna leiðbeiningar um efnin sem við bjóðum uppá frá Moeller Stonecare, ítarlegri leiðbeiningar má svo finna inná heimsíðunni hjá þeim.
Meðhöndlun á flísum og náttúrustein:
1. Grunnhreinsun (R-efni notuð)
2. Yfirborðsmeðhöndlun (S-efni notuð)
3. Viðhaldsefni (P-efni notuð)
4. Djúphreinsun (R-efni notuð)
Steinskífa
Til að auðvelda þrif er ráðlagt að hreinsa steininn vel áður hann er fúgaður og bera svo eina umferð á steininn af P23 efninu, blandað 1:1 út í vatn. Þetta á að auðvelda grunnhreinsun á steinskífunni eftir að búið er að fúga.
1. Grunnhreinsun

R 55 - öflugur hreinsir án saltsýru. Þekur u.þ.b. 5-15 fm.
R 63 - öflugur hreinsir með saltsýru, leysir upp fúgu. Þekur u.þ.b. 5-15 fm.
Eftir þrif þarf skífan að þorna vel, stundum nokkra daga, áður en meðhöndlun er haldið áfram.
Þegar R-63 er notað er æskilegt að þrífa steinskífuna vel með heitu vatni. Ef skífan er ekki þrifin vel með heitu vatni er hætt við því að saltsýran sitji eftir á yfirborðinu og þegar yfirborðsmeðhöndlun er lokið komi hún í ljós sem hvítar rákir.
2. Yfirborðsmeðhöndlun

S 34 - mött áferð sem breytir litnum á skífunni minnst. Þekur u.þ.b. 5-15 fm.
S 35 - hálf mött áferð, skerpir örlítið á litnum á skífunni. Þekur u.þ.b. 5-15 fm.
S 37 - glans áferð gefur skífunni glansandi áferð, hentar vel til meðhöndlunar á grófri skífu eins og t.d. Peacock. Þekur u.þ.b. 5-15 fm.
Best er að nota gólf-pensil, svamp eða mjúka tusku þegar efnið er borið á. Athygli skal vakin á því að bera yfirborðsefnið jafnt á steinskífuna og eru tvær umferðir ráðlagðar.
3. Viðhaldsefni

P-24 Fljótandi náttúrusápa, dagleg þrif, setjið reglulega út í vatnið (25-50 ml/10 lítrar af vatni).
P-23 Glans bjargvættur, setjið reglulega út í vatnið (mánaðarlega u.þ.b. 100-200 ml/10 lítrar af vatni).
4. Djúphreinsun

R 55 - hreinsar í burtu skít og drullu. Þekur u.þ.b. 5-10 fm/líter.
R 80 - hreinsar í burtu eldri yfirborðsmeðhöndlun. Þekur u.þ.b. 3-5 fm/líter.
Þegar verið er að hreinsa eldri gólf er æskilegt að staðið sé vel að djúphreinsuninni. Ef það er ekki gert er hætt við því að árangurinn verði ekki ásættanlegur þegar hann er gólfefnið er endurmeðhöndlað.
Postulín og keramikflísar, án glerungs
1. Grunnhreinsun

R 63 - Steinsteypuhreinsir, hreinsar í burtu steinsteypu og fúgu. Öflugur hreinsir sem inniheldur saltsýru.
R 59 - Keramikhreinsir, inniheldur saltsýru.
Eftir grunnhreinsun þurfa flísarnar að þorna vel. Ekki er ráðlagt að halda áfram meðhöndlun fyrr en eftir 4-5 klst í fyrsta lagi, stundum þarf að bíða lengur.
2. Yfirborðsmeðhöndlun
Grundvallar undirstöðuefni:

S 32 W - Vatnsþynnt vörn - aukin verndun - litabreytingar á flísunum verða mjög litlar.
S 34 - Kísilvörn - auka verndun.
Þessi efni hafa verið sett í prófun hjá matvælaiðnaðinum og þar hefur verið staðfest að þau geti ekki valdið skaða eftir að þau hafa þornað. Þess vegna er í góðu lagi að nota þessi efni á eldhúsborðplötur og gólf í barnaherbergjum.
3. Viðhald
Dagleg þrif
P 24 - Fljótandi sápa, setjið reglulega út í vatn (25-50 ml/10 lítrar af vatni)
Mikil álagssvæði
P 23 - Bón bjargvættur, „engin skolun", bætið við út í hreint vatn (100-200 ml/10 lítrar af vatni). Skúrið fyrst vel með P 24 og skúrið svo einu sinni í viðbót með P 23.
4. Djúphreinsun

Eldri meðhöndlun hreinsuð í burtu.
R 57 - Öflugur keramikflísahreinsir, hreinsar í burtu óhreinindi (skít og drullu).
R 54 - Öflugri hreinsir en R 57, hreinsar í burtu gamla bónhúð.
Æskilegt er að þrífa steininn mjög vel við djúphreinsun til þess að ásættanlegur árangur náist þegar flísarnar eru endurmeðhöndlaðar.



