Lím og undirlag

Hjá Parka færðu allt það sem til þarf til að klára lögnina. Hvort sem það er lím, lakk eða hreinsiefni. Á þessari síðu finnur þú upplýsingar um parketlím fyrir fljótandi eða gegnheilt parket, undirlag, fylliefni, sandpappír og fleira.

Lím og grunnur

Lecol

Parki býður upp á efni frá hollenska framleiðandanum Lecol.

Einþátta parketlím

Opnunartími er 10 - 15 mínútur. Þornar á 24 tímum.

Lecol-5500-Parketlijm

Tveggja þátta parketlím

Opnunartími er 60 - 90 mínútur. Þornar á 4 tímum.

Lecol-2ja_edited

 

Rakavarnargrunnur undir parket

Hentar mjög vel fyrir anhýdrít. Ef ekki er parketlagt innan 24 tíma þarf að strá sandi yfir gólfflötinn.

PU 235: Þornar á 4 tímum. Bera þarf á tvær þunnar umferðir til að fá fulla lokun.

PU 280: Hraðþornandi rakavarnargrunnur. Þornar á 30 - 40 mínútum. Bera þarf á tvær þunnar umferðir til að fá fulla lokun, en fyrir bindingu nægir ein umferð.

  

lecolid

 

Bostik

Hefðbundið trélím fyrir spónlagt fljótandi parket sem borið er í nótina á parketinu.

 

Undirlög

Mikilvægt er að nota gott undirlag undir parketið. Í fjölbýlishúsum er krafist hljóðeinangrandi undirlags undir öll hörð gólfefni svo sem flísar, niðurlímt og spónlagt parket.

         

Duratex undirlag. Besta hljóðeinangrun sem völ er á undir fljótandi parket. Varið gegn bakteríugróðri, sveppum, fúkka og ólykt. Þykkt: 4 mm. Hljóðeinangrunargildi: 24 db.

Einnig er hægt að fá Duratex Heatflow undirlag sem leiðir hita mjög vel í gegn og er það sérstaklega ætlað á hús með gólfhita.

undirlag3

 

Kraiburg Rubber. Má nota hvort heldur sem er undir niðurlímdar flísar eða parket. Rubber dúkurinn er með 21 db hljóðeinangrun.

undirlag5

 

Poly ethelyn undirlag.  Þetta hefur verið mest notaða undirlagið undir fljótandi parket í áratugi. Það er varið gegn bakteríugróðri, sveppum, fúkka og ólykt. Þykkt: 3 mm. Athugið engin hljóðeinangrun.

undirlag2

 

Kítti

Parki selur Pafudima kítti til þess að nota við viðgerðir, í samskeyti og listalausar lagnir. Hægt er að fá kíttið í öllum litum og það tekur við olíu, lit og lakki. Hægt að slípa efnið ásamt því að það er með 7% teygjanleika.

  

pafudima

 

Viðarfyllir

Parki selur viðarfylli til að fylla í eftir slípun á viðargólfum. Parki býður upp á bæði  tilbúinn og óblandaðan viðarfylli.

 

Pafuki Super er bindiefni fyrir  sag og er því einfaldlega blandað saman við viðarryk þar til úr verður hæfilega þykkur tréfyllir.

 

 pafuki

 

 

Last n last er tilbúin viðarfyllir. Hann er til í  eik, rauðeik - beyki og hlyn - aski - furu. Last n last fyllirinn er algjörlega lyktarlaus, þornar fjótt og rýrnar lítið.

 

vidarfyllir

 

Sandpappír

Parki selur sandpappír, patsa og net sem ætluð eru til slípunar. Við bendum á leiðbeiningar um slípun á gólfi á þessari síðu.

 

SANDPAPPÍRSNET OG NYLONPATSAR 4OO MM

Sandpappírsnetskífa grófleiki 100

Sandpappírsnetskífa grófleiki 120

Nylonpatsi rauður

Nylonpatsi ljós

 

SANDPAPPÍRSBELTI 200 X 750 MM S

Sandpappírsbelti grófleiki 36

Sandpappírsbelti grófleiki 60

Sandpappírsbelti grófleiki 100

Sandpappírsbelti grófleiki 120

Sandpappírsbelti grófleiki 150

 

SKÍFUR 180 MM OFIÐ BAK

Sandpappírsskífa grófleiki 36

Sandpappírsskífa grófleiki 60

Sandpappírsskífa grófleiki 80

Sandpappírsskífa grófleiki 100

 

SKÍFUR 150 MM 10 MM GAT

Sandpappírsskífa grófleiki 36

Sandpappírsskífa grófleiki 60

Sandpappírsskífa grófleiki 80

 

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.