Veggir

Parki býður bæði uppá glerveggi úr hertu gleri og hefðbundna kerfisveggi úr gipsi og gleri, frá framleiðendunum Movinord og Optima.

Movinord kerfisveggirnir hafa verið á markaði hér á landi síðan 1996 og hafa verið settir upp í yfir 35.000 m2. Helstu kostir kerfisveggjanna eru m.a. endurnýting efnis við breytingar, góð hljóðeinangrun allt að 45 dB, slitsterkur dúkur á gipsplötum og síðast en ekki síst fljótleg og hreinleg uppsetning.
Movinord kerfisveggir bjóða uppá marga möguleika í uppsetningu þar sem ýmsir möguleikar eru til við að blanda saman gleri og gipseiningum. Prófílarnir fást í 28 mismunandi litum og gipsplöturnar með 24 mismunandi yfirborði.    

 

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.